Spurt og Svarað
Hvað er IHM?
IHM ber fullu nafni heitið Innheimtumiðstöð rétthafa. Aðaltilgangur IHM er að móttaka og úthluta bótum úr ríkissjóði til rétthafa vegna eintakagerðar til einkanota.
Hverjir eru aðilar að IHM?
Aðilar að IHM eru STEF, SFH (Samband flytjenda og hljómplötuframleiðenda), RSÍ (Rithöfundasamband Íslands), Hagþenkir, (Félag höfunda fræðirita og kennslugagna), BÍ (Blaðamannafélag Íslands) SKL (Samtök kvikmyndaleikstjóra) SÍK (Samband íslenskra kvikmyndaframleiðenda), FÍL (Félag íslenskra listamanna í sviðslistum og kvikmyndum) FK (Félag kvikmyndagerðamanna), Myndstef (Myndhöfundasjóður Íslands), FLÍ (Félag leikstjóra á Íslandi) og FLH (Félag leikskálda og handritshöfunda).
Aðilar að IHM endurvarp eru átta innlend samtök höfunda, flytjenda og framleiðenda. Þessi samtök eru STEF, Samband flytjenda og hljómplötuframleiðenda, Samband íslenskra kvikmyndaframleiðenda, Rithöfundasamband Íslands, Samtök kvikmyndaleikstjóra, Myndstef, Félag íslenskra leikara og Blaðamannafélag Íslands .
Hvejir eru tekjustofnar IHM?
IHM tekur á móti greiðslum úr ríkissjóði sem hugsaðar eru sem bætur vegna eintakagerðar til einkanota. Þessum bótum úthlutar IHM til aðildarfélaga sinna á grundvelli samkomulags aðila, sáttatillögu sáttamanns eða á grundvelli niðurstöðu gerðardóms. Nánar um þetta vísast til 3. mgr. og 4. mgr. 11. gr. höfundalaga nr. 73/1972.