Úthlutun, almenn stefna o.fl.
Almenn stefna um úthlutun réttindagreiðslna til rétthafa
IHM úthlutar annars vegar réttindagreiðslum sem til eru komnar á grundvelli 11. gr. höfl. og hins vegar vegna réttindagreiðslna sem til eru komnar vegna endurvarps og dreifingar sjónvarpsútsendinga og tengdra réttinda.
Aðferðir við úthlutun skulu ráðast af sanngirni og endurspegla þau réttindi sem hagnýtt eru. Til að mæta óvæntum kröfum aðila, sem standa utan IHM, og kostnaði IHM, öðrum en rekstrarkostnaði, skal árlega leggja í varasjóð 5% af heildartekjum IHM hvers rekstrarárs. Þegar höfuðstóll sjóðsins er orðinn kr. 10.000.000,- falla greiðslur til hans niður. Fjárhæð þessi skal endurskoðuð árlega miðað við verðlagsþróun og skal koma fram í ársreikningi samtakanna. Sé gengið á höfuðstólinn skulu greiðslur til hans hefjast að nýju skv. sömu reglum. Eftir að greitt hefur verið til varasjóðs samkvæmt framangreindu og fé lagt til hliðar til greiðslu rekstrarkostnaðar skal réttindagreiðslum úthlutað til rétthafa.
Úthlutað er vegna 11. gr. á grundvelli annaðhvort samkomulags hlutaðeigandi aðila sem staðfest er á fulltrúaráðsfundi eða á grundvelli sáttameðferðar og/eða gerðardóms, í samræmi við samþykktir IHM. Að jafnaði fer úthlutun fram einu sinni á ári.
Úthlutun tekna vegna endurvarps sjónvarpsútsendinga á grundvelli 23. gr. a. höfundalaga nr. 72/1993, og tengdra réttinda fer fram á grundvelli samninga eða samkomulags hlutaðeigandi aðila sem staðfest er á fulltrúaráðsfundi eða á grundvelli sáttameðferðar og/eða gerðardóms í samræmi við samþykktir IHM. Að jafnaði fer úthlutun fram einu sinni á ári.
Nánar er kveðið á um fyrirkomulag úthlutunar, m.a. ef til ágreinings kemur, í samþykktum IHM.
Eftir að greitt hefur verið til varasjóðs og fé lagt til hliðar til greiðslu rekstrarkostnaðar er rekstrarafgangi samtakanna skipt á milli aðildarfélaganna.